föstudagur, 7. janúar 2011

Buddur 2011

Gleðilegt ár! Nú þarf einhver framtakssöm budda að taka sig til og boða til litunar í sínu hosilói og skella í nokkrar klessukökur, við erum orðnar ansi upplitaðar og sumar með sviðnar augabrúnir eftir flugelda, kertaljós, gufur úr sósupottum o.fl.
Allar buddur bíða spenntar eftir Budduleikunum sem jafnan eru hápunktur ársins. Nú vill svo til að 2011 er prímtala og má búast við rosalegu stuði. Jafnrétti og lýðræði auk einstakrar frændrækni eru aðalsmerki hjá Buddum og því má velja á milli tveggja dagsetninga. Sjá könnun hér á síðunni.
Svo má hér læra hvernig maður á að kaupa og nota ilmvatn svo maður sé ekki eins og skíthaugur.

10 ummæli:

Gunna sagði...

Já farið að boða til litunnar buddurnar ykkar :-) svarið svo könnuninni.

Þura Ó sagði...

... ætlið þið að hafa af manni júróvísíon eina ferðina enn????

Nafnlaus sagði...

Sælar kæru frænkur þið sem eru nær og líka þær sem eru fjær, gleðilegt ár og þakka ykkur hin!
Litun í Köldukinn 30 Hafnarfirði 13. janúar á þessu ári, höfum bara frænkutímann á þessu, frá 2000 að staðartíma. Þarf að koma út nokkrum smákökum, mislukkuðum marengsum og uppsópi af ýmsum toga!
Udda elstabudda

Nafnlaus sagði...

Fjórir frænkudagar frá 28.apríl eða þrír frá 13.maí. Hvernig stendur á þessu misræmi? Er kosningin leynileg?
Kveðjur frá Helgu

Ester sagði...

Ég er búin að kjósa og er skítsama svo lengi sem þið troðið þessu ekki á öldungamótshelgina 5-8 maí.

Nafnlaus sagði...

Jæja nú hefur norðanbuddum borist heilmikill liðsauki og teljum við að staðsetningin verði austan Melrakkasléttu og norðan Bakkafjarðar!

Nafnlaus sagði...

Heiðrún...

Ester sagði...

Ég sé að það eru 13 dagar ennþá eftir til að kjósa, þarf maður þá að bíða í 13 daga til viðbótar eftir því að fá að vita hvar, hvenær og hvernig. Ég meika þetta ekki.

Nafnlaus sagði...

Mér sýnist á öllu að 29.APR verði fyrir valinu. Þeim sem er skítsama mæta þá, geri ég ráð fyrir. Nei, ekki skulum við missa af Júróvisíon þetta árið. Stóra Sossa á svo afmæli í dag.
kv Odda

Nafnlaus sagði...

Sunnanbuddur hafa líka fengið liðsauka svo það jafnast út!!