þriðjudagur, 18. janúar 2011

Hauspoki eða hálsklútur?

Litun var haldin hjá Unni á fimmtudaginn var. Rosalegar veitingar frétti ég en það vantaði nokkrar kellingar sem væntanlega eru núna að þvælast um bæinn með hauspoka. Næsta litun verður í febrúar, hver býður sig fram?
Sumir eru með krumpaða hálsklúta og ljóta trefla í kuðli utan um hálsinn á sér í þessari kuldatíð. En ekki Buddur, það er ekki komið að tómum kofa hjá þeim, sjá HÉR.

2 ummæli:

Gunna sagði...

noh.....dugar ekki rembinhnúturinn lengur. Er nú margs fróðari um trefla og hnúta, gaman aðððesssu!

Nafnlaus sagði...

algjör snilld þetta myndband.Næstelsta budda býður í næstu litun.kv Odda