Virðuleg samkoma kvenskörunga að norðan,
heldur litunarklúbb óreglulega í heimahúsum og árshátíð síðan 2004,(snyrti)Budduleika.
föstudagur, 10. september 2010
Litun 8. september
Buddur hittust til heiðurs Jónu gömlu þann 8. september. Þórdís Marín bauð heim í sitt nýja slot og voru móttökur höfðinglegar. Þótti mörgum buddum híbýli sín lágreist, ljót og skítug í samanburði við glæsivillu Þórdísar en létu á engu bera, sbr. þessar myndir af dökkeygum frænkum. Í geimið vantaði þessar af höfuðborgarsvæðinu: Hellu, Helgu Skúla, sýslumanninn, heiðursbudduna sjötugu, Diddömmu og Sossu.
1 ummæli:
voða fagrar buddur!!
Skrifa ummæli