Jæja þá styttist nú heldur betur í gleðina, nefndin hefur hlerað að mæting sé góð þ.e. allar ætli að mæta.
Nefndin hamast við undirbúning og Heiðrún er búin að raða inn á ipodinn þannig að „Bat Out Of Hell“ með Meatloaf verður annað hvert lag... Nolan systur verður „hitt“ lagið.
Væntanlega eru allar líka búnar að útvega sér viðeigandi klæðnað eða búnað í takt við þemað góða og nefndarstörf ættu fljótlega að fara í gang. Að öðrum nefndum ólöstuðum hvílir þó mesta ábyrgðin á herðum Eikanna.
Þær sem verða svo heppnar að fá að sofa í rúmi verða að muna að taka með sér sængurföt, en það er ekki mjög mikilvægt þar sem svefn vegur ekki þungt í dagskrá leikanna.
Gott væri og gaman ef buddur myndu vilja vera svo vænar að melda sig á síðunni og láta vita hvenær má eiga von á þeim norður. Það er hugsanlegt að skipuleggja sætaferðir yfir í skóginn ef margar koma með flugi.
Svo má líka alveg mæra nefndina fyrir frábær störf.
Knús þar til næst.
Ester og Heiðrún
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
13 ummæli:
Eiga Buddur nú að láta vita opinberlega að þær verði að heimili þeirra varnarlaus, einmitt þegar nýlega er komið í ljós hverslags rumpulýður gengur hér um garða og náttúruhamfarir ógna í ofanálag?
Ég kem með kaffivélinni á föstudeginum. Eins gott að tekið verði á mót mér annars verður enginn fordrykkur. Skipulag hefur verið gott hingað til og eigið þið hrós skilið nefndarkonur.
kv Odda
Elskulegu buddur!
Ég verð með svona "ipod-græjur" þannig að þið getið komið með uppáhaldslögin ykkar á ipodum ellegar minnislyklum.
Kv. Heiðrún
Heiðrún græjusjúka!! Flott eigi að síður. Ég veit ekki hvort og þá hvenær ég kem, læt vita í síðasta lagi í næstu viku.
Udda elstabudda
Ég kem líka með kaffivélinni. Mæra skulum við nefndina að leikslokum.
Hlakka til að sjá ylkkur. kveðja Sossa Fura
Ég kemst því miður ekki kæru Buddur svo þið nefndarkonur eruð vinsamlega beðnar að ráðstafa mínu starfi, gangi það ekki út skal ég láta senda mitt framlag frá besta veitingahúsi norðan heiða.
Kv.
ÞuraÁ
Kem sömuleiðis með kaffivélinni.
kem með kaffivélinni, - rammíslensk, kræklótt og til í fjörið !!
kv
GUNNA
Það er ekki alveg á hreinu hvort ég kem, ég læt vita þegar nær dregur.
Udda elstabudda.
Eru dressin tilbúin?
ferleg vandræði með þessi dress....andskotanum erfiðara að finna eitthvað úr flóru landsins....
kv
Guðrún Björk
hæ, er hægt að fá uppl um hve margar mæta? kv Odda Rós
Skrifa ummæli