Kæru Buddur nær og fjær!
Nú hefur nefndin lokið frumundirbúningi Budduleika 2010 og mun nú opinbera nauðsynlegustu upplýsingar, svo Buddur geti farið að skipuleggja ferðatilhögun og viðað að sér nauðsynlegum fylgihlutum í takt við þemað.
Budduleikar 2010 verða haldnir helgina 30. apríl – 2. maí í Vaglaskógi, nánar tiltekið í unaðslegum bústað sem nefndur er Skógarsel. http://www.fvsa.is/page/skogarsel_i_vaglaskogi Efast nefndin ekki um að Buddur verði sem blómi í eggi í Vaglaskógi miðjum, hins vegar er ekki vitað hvort skógurinn muni bera sitt barr eftir leikana.
Þema leikanna verður flóra landsins í takt við staðsetningu, tré, blóm, illgresi, o.s.frv. Við treystum á fjörugt ímyndunarafl Buddanna í þeim efnum.
Dagskráin:
·Föstudagur;
Buddur streyma á staðinn ýmist með flugi, rútu eða á einkabílum frá höfðuborginni, og landsbyggðarbuddur á fararskjótum af misjöfnu tagi, Kristín fremst í flokki. Slegist um rúm og rúmstæði. Hugguleg kvöldstund að vali hvers og eins.
·Laugardagur;
Brunch, bæjarferð, útivera, litun, potturinn, aftur snyrting og svo kvöldverður og skemmtiatriði. Brjálað geim og læti. Ekki gefið mikið upp um þennan lið, Buddur hlýða bara því sem þeim er sagt að gera.
·Sunnudagur;
Buddur tínast á fætur, misjafnlega hressar (Solla hressust) taka til eftir sóðaskap næturinnar, Spurning um að velta sér á hina hliðina og dorga svolítið meðan Þórdís tekur til... Síðan verður tekið til við að faðmaðst, kyssast og knúsast og svo verður kostnaður helgarinnar gerður upp.
Nefndaskipan: (Athugið að nöfn nefnda og ráða hafa enga beina tilvísun í eiginleika eða útlit Budda)
Rammíslenskar og kræklóttar bjarkir (hóst!)
Þuríður Ó, Þuríður Á, Hildur, Gunna
Morgunverðar-brunshnefnd, laugardag og sunnudag
Tilkomumiklar eikur (já sæll!)
Kristín, Odda, Þórdís
Fordrykkjarnefnd
Þráðbeinar og hávaxnar aspir (je ræt!)
Unnur, Steinunn, Helga, Sólveig
Aðalréttarnefnd
Dúnmjúkar furur (eða þannig..)
Hella, Jónína, Soffía, Begga
Eftirréttarnefnd
15 ummæli:
Djöfull standið þið ykkur vel !!! Hlakka milið til og staðráðin í að vera biðukolla !!!...ja eða geldingahnappur.....eða kannski bara njóli !!!
Þú verður örugglega æðisleg. Ekkert mál fyrir mig að vera biðukolla, sleppi því bara að fara til hárgreiðslukonu fram að leikum!
Heiðrún
nei lítið mál fyrir mig, - ætla ekkert að greiða mér fram að leikum :-)
glæsilegt! nú þarf að fara að skipuleggja ferðir norður. Er ekki málið að fljúga? kv Odda
Mér finnst nú þemað vera langt frá upprunanum blóm - tré - og Aspir !! en annars mjög spennandi og legg ég til að allur matur verði og í þessu þema t.d. rabbabararagú / fíflavín ofl.ofl.
mjög ánægð með nafngiftina enda á hún mjög vel við mig.
kveðja,
Dúnmjúka Furan hún Soffía
á nú að fara bryðja furuköngla og rekla....það er kannski í lagi ef nóg er fíflamjólkin !!!
Ein kræklótt og ein hávaxin búnar að kaupa flugmiða !!! mæli með flugpunktum !! jibbí jibbí jei !!!
Var að bóka flug á aðeins 9.980,- þrátt fyrir punkta- og peningaskort!
Fer að vísu kl. 14:00 frá Rvk. verður einhver samfó?
Dagskráin er dásamleg og þá sérstaklega bæjarferðin sem ég geri ráð fyrir að verði eytt í kröfugöngu.
Jónína Ingibjörg
Gaman að sjá hvð buddur er vel stemmdar. Nefndin leggur nótt við dag í skipulagningu helgarinnar og lofa frábærri helgi.
Ég toppa held ég farmiðaverðið, 14950 ísl. kr. Vona að það verði þá mest dekrað við mig og ég fái besta herbergið og mýksta rúmið.
..bíddu bíddu....bæjarferð ??? Vonandi á bæ en ekki í bæ !!
..bíddu bíddu....bæjarferð ??? Vonandi á bæ en ekki í bæ !!
Það er bara ekki hægt að upplýsa allt á þessari stundu
assskoti gegnur mér illa að finna búning.....en þið? hvernig gengur ?
Skrifa ummæli