mánudagur, 7. apríl 2008
Óskalög sjómanna
Sumar nefndir hafa þegar fundað og skipt verkum þótt aðrar hafi ekki lyft pennastriki. Skífuþeytinganefnd hefur t.d. skipulagt óskalagaþátt. Á laugardagskvöldið verða leiknir aðallega tveir flokkar laga, skyldulög (s.s. Africa, Hotel California, Never marry a railroad man, Soley Soley) og valin lög að smekk hvers og eins, t.d. stöku Smokie- og Uriah Heap-lag og jafnvel eitthvað íslenskt. Buddur geta sent inn komment til miðvikudags og reynt þannig að troða sínum uppáhaldslögum inn á danslistann. Þangað til er vert að horfa á þetta snilldarmyndband: Og syngja með!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
10 ummæli:
Já, ég söng sko með - raddað! Og buddur, það þýðir ekkert að röfla um einhver óskalög þegar á hólminn er komið og farið að sjást til botns í flöskunni, við skífuþeytinganefnd verðum með allt niðurneglt þannig að troðið ykkar lögum inn og nefndin vegur þau og metur á faglegan hátt og sonna... Ester ekki hafa áhyggjur, bæði Nolan-systur og Ellen Foley eru á listanum, eru ekki örugglega hárburstar með í snyrtibuddunum?
red red wine og black is black verða nú að vera á listanum þykir mér í stíl við þemað.....tali nú ekki um Síldarvalsinn :-) ég mæli með ACDC Thunderstroke, Guns and roses Sweet child of mine, Rolling Stones má ekki vanta og Villi Vill verður að vera. Ég fagna Ellen Foley og systrum Nolan. Þetta er allt að verða hið efnilegasta..
Komið á blað hjá nefndinni, gætirðu verið svolítið nákvæmari með Rolling Stones, þeir gáfu nefnilega út nokkur lög á sínum tíma minnir mig, erum við að tala um brown sugar, honky tonk woman og start me up?
Traustur vinur er allavega á bannlista.
Og eigi mun ég stíga villtan dans við Rabbarbara-Rúnu það hörmungarlag!
Mér datt nú bara SMOKIE í hug. Svo væri alveg snilld að hafa Sálar þema..
Nákvæmara með Stónserana: nýji diskurinn er góður...gefinn út stuttu eftir þeir fóru á ellistyrkinn, annars bara "greitest shits". Hótel Jörð er á bannlista og Bambóleijó er það ekki öruggt ???
Sísí fríkar út, Tondeleió, Easy living, Hvítir mávar, Þegar hann er til svæðis... (þið vitið; heitir e-ð fáránlegt) og Abba; Money, money, money, o.fl. í þeim dúr og Svarti Pétur, Jenny Darling (eða lagið hinu megin á plötunni man ekki hvort er skárra) og síldar- og sjómannavalsana, allan pakkann frá:
Þegar Jón í fyrsta sinn fékk litið dagsins ljós...
SÍLDARVALSA?? Er von á karlmönnum á svæðið til að dansa við? Minni á að nefndin metur allar tillögur á faglegan hátt og ekki margt sem kemst í gegnum það nálarauga......
Sigló og engir síldarvalsar? Er það faglegt? Mér finnst það viðeigandi!
Skrifa ummæli