Dress-code svart og rautt! Dagskráin er svohljóðandi:Föstudagur: lending....snjósleðar, þyrlur og þotur....Buddur hittast og knúsast. Í minningu Eldvatns, gruggugur mjöður að eigin vali og úr eigin ranni..Snarl og snakk, allir koma með eitthvað skemmtilegt og ljúffengt til að narta í með eigin miði. Kvöldverður er á eigin ábyrgð (svo er m.a. spelað).
Laugardagur: Vöknun nánast að eigin ósk og brunch kl: 11-13: umsjónarmenn: Soffía og Hella. Útivera 13-14: hollt og gott fyrir alla. Snyrtistund kl: 14-16: Nudd, Snyrtiskóli, Litun, Förðun, Vax ofl....Unnur opnar risabudduna. Útivera kl: 16-18: já aftur....hvort sem ykkur líkar betur eða verr........kannski eitthvað óvænt.
Fordrykkur kl: 18.01-20: Þura Árna. Kvöldverður kl: 20-22: Forréttur: Steinunn og Ester. Aðalréttur: Odda og Gunna, hver komi með sitt borðvín en aðalréttur kvöldsins er íslenskt húsdýr. Eftirréttur: Þura Ó og Unnur.
Kvöldvaka 22- ??: Steinunn og Heiðrún eru skífuþeytarar kvöldsins, síðan verða algjörlega óvæntar uppákomur Skemmtiatirði úr hverjum fjórðungi, hámarkslengd 45 mín...
Sunnudagur: vöknun að eigin ósk (nánast).Morgunmatur 11-13, Berglaug, Helga og Krístín. Blóðugt uppgjör (í boði KPMG. Brottför ekki leyfileg fyrr en því er lokið), þrif og frágangur, kveðjustund og myndataka.
Það sem á að koma með: svefnpoka/sæng og kodda, útiföt (víst), svartan og rauðan klæðnað, sundföt, handklæði og að sjálfsögðu snyrtibuddur...ATH húsið tekur 11 manns, Akureyri skaffi eina dýnu, Reykjavík 1 dýnu og Garðabær 1 dýnu....þær skulu vera mjúkar sem lunga, ómignar og léttar sem fiður.
Nefndin
16 ummæli:
Glæsilegt stúlkur. En það tók tímann sinn! læt ég fylgja með nokkrar athugasemdir: Rautt/Svart hvers konar þema er það ?? KR?? Tvisvar útivera !!?? Þó maður sé nú í formi þá er þetta yfirgangur. Ég ætla ekki að vera á dýnu. Annars er þetta ágætt hjá ykkur þrátt fyrir smá hringl.
....mig grunar að "budduleikar" sé Soffía, enginn annar myndi kvarta undan útiveru tvisvar, - eða hvað ??? Eigið þið ekki rauðan varalit ? Svo er þetta prýðisþema og það er stranglega bannað að setja út á störf nefndarinnar...gæti haft alvarlegar afleiðingar. knús Gunna
Mér líst þetta afar vel, þið standið ykkur eins og hetjur í nefndinni. Við sem vorum alvarlega að hugsa um að gera hallarbyltingu!!
Ég skal vera á dýnu, er bæði með sterkt og breitt bak!
Þeim sem stunda líkamsrækt veitir ekkert af því að anda að sér fersku lofti eftir að hafa djöflast í gríð og ergi innanum sveitta skrokka, misjafnlega lyktandi ;-)
Hlakka til að sjá ykkur.
Til hvers að takmarka skemmtiatriði við 45 mínútur? Verður þetta ekki ein skemmtun út í gegn? Frá fyrsta knúsi á föstudegi fram að myndatöku á sunnudegi?
Dísús, þetta er frábært hjá ykkur. Fjórðungarnir, skiptast þeir ekki eftir kjördæmum? Andskotans vesen með dýnur og til hvers, ætlið þið að sofa á Siglufirði??!
Við norðankonur eigum ennþá innhi skemmtiatriði frá sunnankonum frá því á Hnausum ef mig minnir rétt. Ef ég skil þetta rétt þarf ég ekki að koma með dýnu???? Helv. gott. Annars get ég alveg vakað með Ester, það yrði þá ekki í fyrsta skipti:::)
Það er ekki þar með sagt að þeir sem komi með dýnurnar eigi að sofa á þeim....ekki kannast ég við útistandandi skemmtiatriði ....eru önnur vitni?
Ókey, nú skil ég, dýnur = fimleikasýning, það hlaut að vera. Tek undir með Soffíu, svart og rautt hvað?
Svört og rauð föt.Skiljiði ekkert. Ég er að heimsækja háborg tískunnar á morgun og kem dressuð skv. því á Sigló.
Er ekki hægt að laga tímann á þessu bloggi? odda
Hvað segiði svart og rautt, líst vel á það, ætlar Ester að sofa á Sigló, hún hefur nú verið þekkt fyrir annað, ætli það verði ekki helst ég sem sef af mér lætin í ykkur. Jæja er að fara í próf eftir 30. mín úfff
Mikið er ég farin að hlakka til ! Ég lofaði Heiðrúnu í fyrra að fara ekki svona snemma að sofa á buddleikum í ár svo ég þarf enga dýnu, fleygji mér bara í sófann.. Sunnan Buddur: fjórða æfing skemmtinefndar verður á sunnudagsmorgun kl.0900 hjá Steinu.
knús.Sossa
...sko Soffía er "budduleikar"...
... Soffía þú mættir ekki á æfinguna í morgun - og ert því útskúfuð úr klukkustundarlöngum samsöng okkar sunnanmeyja!!!!!
Ekki örvænta Soffía! Við klekkjum á þeim með lööööööngum dúett (eða birtum dóma um konsertinn þeirra)
Helga, í hvaða kjördæmi ert þú ?
Skrifa ummæli