þriðjudagur, 1. apríl 2008

Fiskisúpa Onnýjar

Þessi súpa er stórgóð og landsfræg og léttir eflaust lund margra þessa dagana, ekki síst þeirra sem þurfa brátt að leggja land undir fót og spara heimilispeningana.

gulrætur
sellerí
hvítlaukur
1-2 laukar
niðursoðnir tómatar í dós
pipar, salt
Fennel, smákúmen
1-lítri fisksoð (má vera úr teningum)
Þetta allt soðið í 1 klst. (mikilvægt)
Best er þegar súpan rífur vel í!
Safi úr appelsínu
1 peli rjómi,(alls ekki nauðsynlegt, set hann ekki alltaf í)
Fiskur síðustu mínúturnar:
Ýsa-lúða-humar-rækjur-hörpudiskur ofl.

4 ummæli:

Odda sagði...

Þessi klikkar ekki. Er verið að mælast til að hún verði sett á matseðil Budduleika 2008?

Þura Ó sagði...

... hljómar mjög vel.....

Þura Ó sagði...

er með eina fyrirspurn....
kæmu fleiri ef þetta væri haldið annars staðar.... t.d á vesturlandi eða á norðulandi eða á sunðurlandi nær.... eigum við að setja upp könnun um þetta eða hvað.... annars ætlaði ég EKKI að skipta mér af þessu öllu saman... bara að mæta með mín buddu... langaði bara að vita hvað við værum margar í allt.....

ÞuraÁ sagði...

Skv. mínum skilningi erum við 11 í dag þ.e. m.v. Eldvatn, sem sagt, Unnur, Odda, ÞuraÁ, Soffía, Hella, Helga, Begga, Steinunn, Gunna, ÞuraÓ, Ester. Passar það?