Ég vonast til þess að einkaþyrlan mín verði komin úr viðgerð og þyrluflugmaðurinn verði komin úr meðferð þegar kemur að budduleikunum í ár svo ég komist þarna suðreftir til ykkar. Verða svo ekki næstu leikar ekki örugglega haldnir á Skálum? Getum við af landsbyggðinni ekki komið okkur saman um ferðamáta? Það eru 654 km frá Þórshöfn í Klaustur austurleiðina AÐRA LEIÐINA, og 982 km frá Þórshöfn í Klaustur AÐRA LEIÐINA, hina leiðina. Vitiði hvað lítrinn af eldsneyti kostar? Vitiði hvurnig Ísland lítur út? Ég er samt alveg til í ferðalag með ykkur sem búið á hinum ýmsu hjörum veraldarinnar ef þið viljið eitthvað með mig hafa. Við getum spelað á leiðinni.
Kæra Budduleikanefnd; Svona lítur Ísland út

Knús
25 ummæli:
Eins og talað úr mínum munni Ester, ég þorði bara ekki að vera svona aggressív, en eru buddur eitthvað farnar að ryðga í landafræðinni? Já, það eru 654 km í klaustur og þá á eftir að keyra slatta í viðbót ef mér sýnist rétt á landakortinu. Síðan eru það heiðarnar: Brekknaheiði=holóttur malarvegur, Sandvíkurheiði=malbik, Vopnafjarðarheiði=holóttur malarvegur+mjóasti og leiðinlegasti vegur Íslands, Breiðdalsheiði=holóttur malarvegur og síðan veit ég ekki meir, enda komin út fyrir endimörk alheimsins eins og Bósi ljósár. Hvernig er það, voru Hornstrandir ekkert inni í myndinni? Ég segi bara svona.....
Við gætum náttúrulega spelað LÖNGUvitleysu.....
Ég gleymdi Hárekstaðaleið
Gleymdirðu ekki líka nýju Fáskrúðsfjarðargöngunum og grjóthrunsskriðunum sem alltaf eru lokaðar ef rignir? Bendi líka á Sprengisand og þaðan Fjallabaksleið niður í Skaftártungu! Þægileg leið á vélsleða eða þannig.
Það gæti bæst við bókaflokkinn "Hrakningar á heiðarvegum"
test
Sælar - er loks komin inn.
Mér er spurn hverjar ætla ekki? Gjörasvovel að gefa gildar ástæður!!!
er ekkert búin að gera frá 1000-1200 til að komsat inn á þetta bogg
!! sem er reyndar stórsniðugt þegar upp er staðið :)
sælar buddur þetta er náttúrulega út í hött, með fullri virðingu fyrir skipuleggjendum, en þó að mig dauðlangi að hitta ykkur þá er orðið of seint fyrir mig að fá ódýrt flug til rvk.flug milli egs og rvk kostar 12þús þá á ég eftir að koma mér í Egs.og til baka ef ég myndi keyra ca 1200km, þá þyrfti ég að taka mér minnst 1 frídag í vinnunni.ég sé mér ekki fært um að koma alla þessa leið. vonandi er þetta gild ástæða. kveðja þórdís þorb
væri ekki styttra að fara bara yfir jökulinn
pruf
a
andskotinn..ég verð þá bara aðal buddan
Sælar stúlkur/buddur
Eftir því sem mér skilst þá eru um 480 kílómetrar frá Neskaupstað í Kirkjubæjarklaustur, sem gera 5 klukkutímar í akstri ef færð er góð - aðra leiðina.
2 klst tekur mig að fara til og frá Egilsstöðum ef ég kæri mig um að borga rándýran flugmiða af einokunarflugfélaginu til Reykjavíkur og svo 6 klst að keyra frá Rvk. til Kirkjubæjarklausturs og til baka.
Ég veit þið alveg hrikalega skemmtilegar og sjálfsagt missi ég af miklu fjöri.... en sorrý á ekki flugvél og ekki nornakúst :)
Þessar ástæður tel ég fullnægjandi til að afboða komu mína á Budduleika 2008.
Þangað til næst :) HVÞ
Vá, þetta eru bara hávær mótmæli, aðgerðir vörubílstjóra eru smámál miðað við þetta. Spruning hvort viðbrögðin verði eitthvað kröftugri.
Hver er hin dularfulla "budduleikar" sem mælir svo spekingslega?
Næst verður hátíðin að vera á hentugri stað fyrir Þórshafnar-, Vopnafjarðar- og Austfjarðabuddur. Jafnrétti og bræðralag verður að ríkja milli okkar.
... veistu ekki hver er aðalbuddan..... ja ég er nú svo aldeilis hissa.....
Við verðum að leysa þetta með staðsetninguna svo öllum líki. Allar tillögur eru vel þegnar. Helst hús þar sem við getum verið allar og þá eru það rúmstæði fyrir allt að 16 manns.
Elvatnið í uppnámi. Verið að skoða aðra möguleika. Hvað með Skála eða Læknesstaði, eru engin hús uppistandani þar? Tillögur sem fyrst, takk....
eigi má norðanbuddur vanta til leikanna..nefndin er sveitt við að finna stað á Íslandi þar sem allir þurfa að keyra jafn langt, á jafn vondum vegum jafn mikið malbikuðum, jafn margar heiðar og jafn mörg göng og jafn marga kílómetra...nánar síðar :-)
...þetta er ekki aprílgabb.....
Viðbrögð við mótmælum. Hvað segið þið um að hittast á Siglufirði? Nefndin þarf að fá skjót viðbrögð um hverjar myndu mæta þangað. Tilkynna til Oddu, ÞuruÁ eða Gunnu, ekki seinna en strax.
Nú held ég að byrjað verði að þvæla.. en mér líst vel á að skipta um stað svo allar geti vel við unað. Siglufjörður (Lillu Hús!) fær prik. Held að sé ball á safninu þessa helgi :) Svo upp með síldarsvuntuna og þegiði svo.
hver er þessi budduleikar kona? Sigló skal það vera. Lítur það ekki ansi vel út? Fullt hægt að skipuleggja þarna. Safn og allt.
Það er ekki nema ein sem kemur til greina ef nefnt er "ball".
Líst vel á Sigló og látiði nú í ykkur heyra
Skrifa ummæli