Föstudagur, miðaftann:
• Buddur hittast í Ytri-Vík
• Buddur kyssast og knúsast.
• Hver með sitt snarl í poka til að maula á föstudagskvöldinu.
• Ekki er bannað að drekka af stút.
Laugardagur um dagmál:
• Morgunverður í boði fjörulallanna, Steinu, Hellu og Þórunnar. Ekkert helvítis heilsufæði, nóg af drifhvítum sykri og snjóhvítu hveiti. Morgundrykkur nauðsynlegur, lágmarksalkóhólinnihald 10%.
• Að loknum morgunverði verður farið í fjöruferð þar sem keppt verður í parís. Buddur skulu koma með parísplötur með sér, eða finna í fjöru, best að þær séu úr baneitruðu astbesti.
• Þeim Buddum sem ekki þora í sjóbað verður hent í sjóinn.
• Að lokinni fjöruferð verða snyrtibuddurnar dregnar upp og öllu hrært saman í graut á miðju borðinu. Buddur lita sig og aðrar í gríð og erg fram eftir degi, passa að stela nú örugglega einhverju þegar tekið er saman kl 15:17.
• Kl. 16 er mæting í Kalda þar sem Buddur verða með gæðastýringu á framleiðslunni, ekkert sull kemst í gegnum nálaraugu Budda!
• Á kartöflutíma setja marbendlarnir í kvöldverðarnefndinni upp kartöflur og þverskorna ýsu og kolkrabbinn í fordrykkjarnefnd hellir einhverju rótsterkuí glös handa banhungruðum og þyrstum Buddum.
• Ýsurnar í eftirréttanefndinni gleðja bragðlauka Budda, muna nóg af hvíta stöffinu!
• Etið, drukkið, dansað og farið með gamanmál fram eftir nóttu. Síldin í tónlistarnefndinni heldur uppi stuðinu. Hverjar fara síðastar að sofa??
Sunnudagur um nónbil:
• Hver Budda gramsar úfin, baugótt og tætt í ískápnum eftir einhverju æti, allt skal etast upp! Hver verður þunnildi Budduleikanna 2012??
• Buddur taka síðan sjálfar til (hvar verður Þórdís??) og kyssast og knúsast fyrir heimferð.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
15 ummæli:
Morgunskokk á laugardegi! koma svo... kv marhnúturinn
Þú nafnlausi morgunskokkandi marhnútur, - á að drepa mann!?
Dásamleg dagská en aðeins mútur geta haft áhrif á heilsustefnu morgunverðarnefndarinnar.
Glæsileg dagskrá :-) heilsustefna hefur verið tekin í eftirréttanefnd enda rabbaragrautur bæði hollur og góður!!! við ætlum að hafa hann sykurlausan!!
Vilja einhverjar far með mér í Ytri-Vík ?
Allt skokk er bannað! Það er hægt að taka nokkur fjörug dansspor í staðinn, alveg jafnmikil líkamsrækt í því, ef ekki meiri..
HÓ
Ég þigg far í Ytri vík. Veit samt ekkert hvernær ég fæ flug.OFÁt
Eru ekki sætaferðir?
Hvenær ferðú í Víkina Ester? Verður almenningsvagn?
Við KÓ verðum líka á bíl - ekki hugmynd um hvenær við verðum á Ak, vonandi ekki seinna en 17.
Hvenær lendið þið?
HÓ
Haldið þið höfuðborgarbuddur að það séu sætaferðir og almenningsvagnar fyrir langsbyggðarbuddur þegar þær koma suður. Nei þið getið bara „skokkað“ þetta.
Látið vita um lendingartíma og við tjöslum þessu einhvern veginn saman.
Sossa, Steina og Gunna koma með kaffivélinni!!!
Það er allt of snemmt, þurfið þið ekkert að vinna ?
Við erum bossar í okkar vinnu og hegðum okkur sem slíkar. Eitthvað annað en þið, þrælarnir. Við tökum bara Hummer á leigu og málið leyst.
Skrifa ummæli