mánudagur, 2. maí 2011

Rangárbakkar 2011
































Það var mikið um dýrðir á Rangárbökkum um helgina. Góð mæting, alls 15 Buddur. Um tíma stóðu jafnvel vonir til að Kristín Óladóttir mætti en þær urðu því miður að engu. Það var dansað, drukkið og étið og djöflast fram á morgun. Keppt var í ýmsum greinum og alltaf "dælt við deimarann" af fullri hörku og útsmoginni lagakunnáttu. Drykkur helgarinnar var Rommsítónik. Héldu sumir í sveitinni, meðan gleðin stóð sem hæst, að Suðurlandsskjálfti væri hafinn, aðrir að eldgos hefði brotist út. Þemað var flott og verður að segjast að Unnur tók það með trukki og eins átti Þura Ó snilldartakta í sínu dressi, ekki síst með fjaðraslæðuna í gólfæfingum. Þá voru bæði Helga og Þura Á með glæsta hatta að hætti breska aðalsins í anda nýafstaðins konunglegs brúðkaups. Allir fengu barmmerki með brúðhjónunum ungu til minningar um geimið.

3 ummæli:

Gunna sagði...

Þetta var dásemdin ein, er enn með brosið eftir helgina, yndislegt að eiga svona dásamlegar frænkur!!! Strax farin að hlakka til næstu budduleika þar sem ég er staðráðin í að afsala mér formlega "þynku-titlinum"!

Nafnlaus sagði...

Hver pant fá þann titil??! Við Ester bjóðum þig velkomna í vökuklúbbinn til okkar:) En takk fyrir samverUNA hjartans buddur, þetta er náttúrulega dásamlegt að eiga þetta í vændum á hverju ári!
Kv. HÓ

Gunna sagði...

Ég gæti náttúrulega boðið titilinn upp á næstu leikum, þarf bara "romsítónik" og einhver hreppir hnossið!!!! Skráið mig í vökuklúbbinn.....