þriðjudagur, 5. janúar 2010

Nýtt litunarár

Takk fyrir síðast elskurnar, þ.e. í jólaboðinu mikla í Klausturhvamminum. Þar voru þvílíkar veitingar bornar á borð að annað eins hefur varla sést og er á engan hallað þegar framlag Skúladætra er lofað sérstaklega, enda bæði einstaklega glæsilegur og bragðgóður eftirréttur þar á ferð. Þá gaf einnig að líta laxapaté á borðum, fiskisúpu, kjötbollur, ís og ostaköku svo eitthvað sé nefnt, allt hvað öðru betra. Á nýja árinu verða bryddað upp á alls konar nýjungum í Litunarklúbbi Langnesinga, augnháralengingu og rafplokkun í svefni, auk augnbotnanudds og glákulækninga. Budduleikar eru í nánd en ekkert hefur heyrst frá nefndinni og er það mál manna að hún sé dauð úr öllum æðum. Gleðilegt nýtt litunarár!

4 ummæli:

GUNNA sagði...

hvar ef nyðri nefndin og er hún ekkert að gera ???

Gunna sagði...

Hmmm....ha ??

Gunna sagði...

Vonandi verða ekki budduleikar þegar ég er í New York 14.-18. apríl !?!?!

Nafnlaus sagði...

Alveg rólegar, góðir hlutir gerast hægt, við viljum ekki birta okkar frábæra skipulag strax til gagnrýni og niðurrifs, enda ekkert færi gefið á mótmælum. Sennilega er best að sýna ykkur ekkert fyrr en þið mætið á staðinn!

Heiðrún