Sælar undurfögru frænkur,
líður nú að vetri og betra að vera vel litaður til að maður týnist ekki í snjónum fölur og hvítur. Ég býð til litunnar þriðjudagskvöldið 20. október í Giljatanga 3 í Rangárþingi Ytra. Þið getið komið beint eftir vinnu og fengið léttan kvöldverð þá verðið þið ekki seinar heim í bólin ykkar mjúku :-) Nú ef veður verða tvísýn þá tökum við á því þegar þar að kemur.
Þátttaka tilkynnist ! því auðvitað þarf ég að reikna út hversu mörgum sauðum ég þarf að slátra.......
með bestu kveðju úr sveitinni
GUNNA
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Gunna klikkar ekki. Ég mæti.
kv Odda
Flott á því Gunnar, bara dinner og allt, ég kem með....
Og ég læt mig ekki vanta. Svo förum við á Kanslarann á eftir
Ég mæti sko ! enda verður maður að vera vellitaður f. sláturhúsballið en Gunna er kannski ball í Njálsbúð ?? ks.sossa
Ekkert ball í Njálsbúð á þriðjudagskveldi.....því miður.
hlakka til að sjá ykkur.
kv
GUNNA
Jæja, - nú er komið að því !! liltunin er í kveld og verður boðið uppá ákaflega þjóðlegan kvöldverð svo það er bannað að "pulsa" sig upp á Selfossi..
Skrifa ummæli