fimmtudagur, 10. apríl 2008

Hvar á ég að sofa?


Hér með tilkynnir nefndin góða hvernig herbergjum á Túngötunni er úthlutað og hver á að sofa hvar. Þetta er gert í tíma til að koma í veg fyrir alvarlegar ýfingar og forða bæði móðgunum og meiðslum. Hægt er að kvarta formlega (hvadanoldur@budduleikar.is) ef mönnum finnst þeir órétti beittir eða vilja af einhverjum ástæðum aðra herbergisfélaga en þeim er úthlutað, t.d. vegna háværra svefnhljóða eða alkunnra drykkjuláta. Herbergin verða merkt viðkomandi þegar gesti ber að garði svo ekki verður um að villast hver á að vera hvar.

Lokrekkjuherbergi: Þura Á, Unnur, Odda (ein dýna)
Miðjuherbergi: Solla og Heiðrún
Mömmu herbergi: Sossa og Hella (ein dýna)
Lokrekkjuherbergi minna: Helga og Begga (ein dýna)
Kojuherbergi: Ester og Hildur Vala
Hjónaherbergi: Steinunn, Gunna, Þura Ó (ein dýna)

4 ummæli:

Gunna sagði...

....hvert herbergi verður að koma með sína dýnu...Þura Á, Unnur og Odda koma með eina, Sossa og Hella með eina, Helga og Begga með eina og við systur með eina. Svo geta buddur rifist um það hver sefur á dýnunum, þannig takmarkast ýfingar við herbergin en leiðast ekki útí blóðrauð slagsmál um allt hús :-)

Ester sagði...

Vil bara benda ykkur á að HVÞ afboðaði sig 2. apríl undir blogginu "allt að gerast"
Ég verð þá ein í herbergi og þarf ekki að koma með dýnu. jibbý

Nafnlaus sagði...

Ester, þú getur fengið dýnu hjá pabba fyrir okkur systur svo þú þurfir ekki að hringla alein í tómum bíl.
-Kemur Kristín morgunverðarnefndarformaður ekki eða er henni ætlað að vera vökukona?

Unknown sagði...

Sælar nú. En spennandi ferð. Vildi að ég gæti deilt einu herbergi með ykkur. Þó það væri ekki nema að sofa á gólfinu. Góða skemmtun um helgina-
Skál frá Lúx
Íris